10.12.2011 11:36
sorgarfréttir.... :(
Þann 1.desember sl. urðum við fyrir miklum missi, en þá misstum við folaldsmerina okkar hana Glóð frá Blönduhlíð :( Hún hafði álpast í ristahlið og fótbrotnað, önnar framfóturinn mölbrotnaði svo það var ekkert annað í stöðunni en að fella hana. Þetta var alveg ömurlegt og við gerðum lítið annað allan daginn en að grenja úr okkur augun. Glóð var með staðfestu fyli við Dyni frá Hvammi. 


Glóð í maí 2008.
Við erum varla enn búin að jafna okkur á þessu, þessi hryssa var alveg yndisleg og þrátt fyrir að hafa verið orðin 20 vetra leit hún vel út og átti að eiga nokkur ár eftir í folaldseignum. En við huggum okkur við það að við eigum 3 hryssur undan henni sem halda uppi minningunni um góða hryssu. Sú elsta, Frigg, verður sennilega teki á hús fljótlega og ætlum við að byrja að temja hana sem fyrst. Undan henni eigum við einnig hana Sögu undan Hrók frá Gíslabæ sem virðist ætla að verða lifandi eftirmynd móður sinnar og ekki er það nú slæmt!
Annað að frétta héðan er það að nú eiga rollurnar allan hug okkar, svamparnir voru teknir úr í gærkvöldi, svampar úr þeim sem á að sæða voru teknir úr í morgun. Hrússinn Katar fær svo að kíkja á dömurnar sínar í kvöld og sæða á á mánudaginn. Svo næstu daga verð ég örugglega flestum stundum í fjárhúsunum að fylgjast með að allt gangi samkvæmt áætlun ;)
Prófin hjá mér eru búin, ég tók 2 áfanga í fjarnáminu og náði þeim báðum :)
Við krakkarnir erum búin að baka smákökur en jólaskrautið hefur ekki enn ratað úr kössunum, býst við að það fái nær allt að liggja í kössum þessi jólin, sonurinn er óttarlegur grallari sem finnst skemmtilegt að henda hlutum og þetta litla jólaskraut sem fékk að fara upp hefur ekki fengið mikinn frið. Allir hlutir sem ég á hafa mikið tilfinningalegt gildi, þá sérstaklega styttur og brothættir kertastjakar sem ég hef átt síðan ég var lítil og tek ég ekki áhættuna á að það endi í þúsund molum, frekar verður lítið skreytt þessi jólin, en ætli nokkrar seríur fái ekki að hanga í gluggum, grallarinn hlýtur að láta þær vera.... ;)
Grallarinn varð 2ja ára þann 4.desember og vorum við með lítið afmælisboð, gómsætar tertur og kaffi.
Viktor Bjarni 2ja ára :)
Pjakkurinn fékk auðvitað nokkrar skemmtilegar gjafir sem hann er mikið búinn að leika með, svo fékk hann líka pening og var svo heppinn að þegar peningurinn var settur í bankann fékk hann Brauð og kökubók Disney og var mjög spenntur þegar við bökuðum fyrstu tertuna upp úr bókinni, verður efnilegur bakari þegar hann verður aðeins eldri :) Enda mikill kökukarl!
Dagný Þóra yfirskotta skrapp í helgarfrí í Stykkishólm með ömmu sinni, svo það er rólegt í kotinu núna, við mæðginin notum tímann í kúr og kósý, enda kalt úti og eitthvað að bæta í snjóinn.... ;)
14.11.2011 21:51
alltaf nóg að gera í sveitinni!
Mætt aftur eftir pásu, held að það sé kominn tími til að endurvekja þessa síðu örlítið!




Haustið hefur þotið hjá heldur betur hratt, eiginlega sem betur fer þar sem þetta haust var hálf ömurlegt... Sífellt rok og endalaus rigning, allt á floti en sem betur fer hafa síðustu dagar verið yndislegir, hlýindi og milt veður, akkúrat eins og haustin eiga að vera! :) Mig hefur aldrei langað jafn mikið á þessum árstíma að vera með alla reiðhestana á járnum og ríða út. Það verður hins vegar að bíða enn í nokkrar vikur eða mánuði. Verður vonandi meiri tíma í vetur til útreiða en síðasta vetur, og ekki verra ef veðrið verði "aðeins" betra ;)
Þennan veturinn er á dagskránni að byrja frumtamninguna á henni Frigg
Er virkilega spennt yfir henni, enda er hún algjör töffari. Kemur í ljós hvernig hún kemur út þegar við byrjum vinnuna :)
Undanfarnar vikur hefur verið nóg að gera!
Árlegur Haustfagnaðar sauðfjárbænda í Dölum, alltaf jafn skemmtilegur viðburður sem lauk með stórskemmtilegu balli í Dalabúð með hljómsveitinni Í Svörtum Fötum, held að ég hafi sjaldan skemmt mér jafn vel á balli, bláedrú með bíllyklavöldin! ;)
Kindurnar voru allar teknar inn í lok október, það hefur aðeins fjölgað í hópnum. 4 gimbrar settar á og svo keyptum við 3 gimbrar. Mamma keypti eina golsótta, Addi keypti eina ferhyrnda og ég keypti eina kollótt botnótta sem við gáfum svo pabba í afmælisgjöf. En 2 rollur fóru í bjúgu þetta haustið, þennan veturinn verða þetta 19 stk í fjárhúsunum :)
Kollu-Botna hans pabba
Pabbi varð 60 ára í lok október og bauð í tertuveislu fyrir sunnan, við létum okkur auðvitað ekki vanta, maður sleppir sko ekki marengstertunum hennar mömmu og brauðtertunni hans pabba! Kallinn fékk fullt af flottum gjöfum sem ég vildi flestar taka með mér heim! ;)
Núna á laugardaginn 12.nóv var svo endurvakin Sviðamessa Njálsgötuættarinnar, afkomendur langalangafa Björns og langalangömmu Evlalíu. Síðasta sviðamessa var 1997 og þegar ákveðið var að endurvekja messuna var búist við eitthvað í kringum 10 manns, en ættingjarnir létu ekki á sér standa og enduðum við um 90 manns saman komin í sviðaveislunni! Alltaf gaman að hitta ættingja og núna eru allir ákveðnir að halda ættarmót og hafa sviðamessuna að árlegum viðburði.
Skólinn er líka búinn að vera á fullu í allt haust, ég er líka búin að fara á skyndihjálparnámskeið og færnimöppunámskeið og sinna barnauppeldinu og hinum venjulega heimilsstörfum, svo það er alltaf nóg að gera! :) Og nóg að gera næstu vikurnar, skóli og aftur skóli, kaflapróf, ritgerðir, verkefnaskil og lokapróf. Fengitími hjá rollunum, fullt af afmælum í fjölskyldunni og auðvitað jólastúss í desember :)
Dagný að spekja Snædísi sína
Viktor útimaur, Fálki og Frigg fylgjast með
15.08.2011 19:37
sumarið búið??
Já það er von að maður spyrji sig hvort sumarið sé búið, hér er komin norðan suddi og gengur á meðan slagviðrisrigningu og hitastigið orðið frekar kuldalegt... Eins og september sé kominn í öllu sínu veldi, nema það er víst bara miður ágúst!








Kindur og lömb eru auðvitað löngu komin á fjall! Núna bíður maður bara eftir smölun og réttum, spennt yfir að sjá hvernig lömbin koma undan sumrinu, finnst haustlömbin alltaf svo falleg.
Hluti af hópnum kominn inn í Villingadal.
Rákumst á Búðarrós og gimbrarnar hennar er við vorum að veiða í Krossá.
Glóð frá Blönduhlíð fór undir Dyn frá Hvammi sem var í Ljárskógum á vegum hrossaræktarsambands Dalamanna. Merarnar voru allar sónaðar í dag og vorum við kát yfir því að það sónaðist ca 35 daga gamalt fyl í Glóð
Þær mæðgur Glóð og Þúfa voru búnar að vera í Ljárskógum síðan 19. júní og var ég því orðin verulega spennt að sjá hana Þúfu aftur og sjá hversu mikið hún hefur stækkað og dafnað, auðvitað finnst mér hún stórglæsileg, hverjum þykir sinn fugl fagur og allt það.....
Þúfa og Glóð
Þúfa 15.ágúst
Í byrjun ágúst skellti Addi sér í 3ja daga hestaferð með 4 til reiðar og gekk það vel. Hrossin höfðu ótrúlega gott af ferðinni og þá sérstaklega Æsa sem er 6 vetra. Hún var orðin svo góð í lokin (hefur samt alltaf verið þrusu skemmtileg, varð bara algjört extra gull í lokin
) að Addi hefði helst viljað sleppa fyrirhugaðri sumarbústaðarferð með fjölskyldunni og halda áfram í hestaferðinni.....
Addi leggur af stað í ferðina með þau Smið, Glófaxa, Fálka og Æsu
Við fjölskyldan ásamt Dórótheu systir skelltum okkur í sumarbústað í Varmahlíð í heila viku og var það yndislegt! Veðrið var frábært, auðvitað, er ekki alltaf gott veður í Skagafirðinum?
Fyrstu dagana vorum við dugleg að þvælast um, skruppum á Akureyri og í Jólahúsið að versla karamellur. Keyrðum einnig Gilhagadal, að Blöndulóni, stoppuðum í Bugaskála, Galtarárskála og í Ströngukvíslarskála. Fórum torfæruleið yfir Svörtukvísl og Blöndu og enduðum í heitum potti á Hveravöllum, æðislegt að hvíla úr þreyttum kroppum eftir hossing og þrengsli í bílunum í heitum náttúrulegum potti! Á heimleiðinni keyrðum við að Blöndulóni og Mælifellsdalinn til baka. Dásamlega fallegt þarna og ekki skemmdi veðrið fyrir, blanka sólskin og þægileg gola.
Í Gilhagadal
Keyrt yfir Blöndu
Slakað á á Hveravöllum
Við höfðum það svo gott í Skagafirðinum að okkur langaði eiginlega ekkert að fara heim, alltaf svo gott að vera fyrir norðan.
Allar myndir úr bústaðaferðinni eru komnar inn í albúmin, nóg að skoða
Flettingar í dag: 23
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 68
Gestir í gær: 42
Samtals flettingar: 96694
Samtals gestir: 36665
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 13:03:15
